Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Benoît Vivier starfar sem almannatengslastjóri hjá Samtökum evrópskra neyðarlína (EENA). Hlutverk hans er að vera tengiliður við stofnanir Evrópusambandsins og yfirvöld hvers aðildarríkis um málefni sem tengjast samskiptum í neyðartilvikum. Hann vinnur einnig að verkefnum sem tengjast staðsetningu þeirra sem hringja í neyð, viðvörunarkerfum fyrir almenning og gervigreind.
Benoît Vivier lauk prófi í stjórnmála- og stjórnsýslufræði í Evrópu frá College of Europe (Bruges, Belgíu) og í alþjóðasamskiptum og Evrópusamskiptum frá Sciences Po Lille (Frakklandi).
Í fyrirlestrinum verður fjallað um rekstrarlegar, tæknilegar og lagalegar áskoranir sem neyðarsamskiptaaðilar standa frammi fyrir í Evrópu. Ný upplýsinga- og samskiptatækni býður upp á mörg ný tækifæri og opnar leið að mörgum samfélagshópum, en þessari tækni fylgja einnig margar áskoranir. Í fyrirlestrinum verður t.d. rýnt í umskiptin yfir í nýja kynslóð fjarskiptaneta, sem geta haft í för með sér margvíslegar úrbætur fyrir neyðarlínur og fyrir fólk með fötlun. Í kynningunni verður einnig fjallað um áhrif tækni og þróunar, svo sem gervigreind og vinnu í heimahúsi, á starfsemi neyðarlínumiðstöðva. Loks verður fjallað um hvernig evrópsk löggjöf tekst á við slíkar áskoranir með lagasetningu, svo sem evrópskum reglum um rafræn samskipti, evrópsku reglugerðina um aðgengi eða reglugerð ESB um gervigreind.