Arnar Þór Egilsson


Arnar Þór Egilsson

Arnar Þór lærði rafeindatækni og hefur starfað sem rafeindatæknifræðingur. Hann hefur starfað í lögreglunni frá árinu 1998. Hann hefur starfað fyrir embætti ríkislögreglustjóra frá árinu 2005. Sérhæfing í starfi eru m.a. sprengjutæknir og kafari fyrir lögregluna. Hann hefur starfað sem stjórnandi ómannaðra loftfara (dróna) frá árinu 2016 hjá lögreglunni á Íslandi.

12 október 2024 13:00 - 13:45
Kaldalón

Drónar hafa verið notaðir frá því að eldgosið hófst á Reykjanesi árið 2021. Í ljósi þeirrar ógnar sem steðjar að Grindavík og mikilvægum innviðum við Svartsengi vegna eldgossins hafa drónar gegnt lykilhlutverki í almennri vitund og öryggi fyrstu viðbragðsaðila, innviðateyma og annarra á svæðinu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig aðgerðirnar gengu fyrir sig, mikilvægi þess að deila upplýsingum og gögnum í rauntíma þegar hættuástand er viðvarandi, tæknilega getu og vandamál, hvernig mismunandi deildir þurfa að aðlagast og vinna saman, áskoranir og hvernig við getum undirbúið okkur fyrir næsta atburð.