Lára Betty Harðardóttir


Lára Betty Harðardóttir

Eiginkona, móðir, bráðahjúkrunarfræðingur, sjúkraflutningamaður EMT-A, meðlimur í björgunarsveitinni á Dalvík, nemi í svæfingahjúkrun, áhugasöm um allskonar sem tengist hreyfingu og útivist vetur sumar vor og haust.
Hjúkrunarfræðingur á BMT SAk með hléum frá 2008, bráðahjúkrunarfræðingur á St.Olavs í Þrándheimi 2012-2015, hjúkrunarfræðingur á HSN Dalvík 2016-2020, sjúkraflutningamaður á HSN Dalvík frá 2016.
Stundakennari við sjúkraflutningaskólann, kennari ERC ALS.

12 október 2024 16:00 - 16:45
Kaldalón

Snjóflóð tók með sér þrjá unga menn sem ákváðu að fara stutta ferð fyrir kvöldverð í brekkunum fyrir ofan bæinn Skeið í Svarfaðardal 8. apríl 2022. Gilið var skannahvítt, glitraði og freistaði. Sú ferð varð örlagarík.
Hvernig var að vera viðbragðsaðili í brekkunum fyrir ofan Skeið þennan örlagaríka dag í aprílbyrjun fyrir tveimur árum?