Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Vörusérfræðingur hjá WL GORE & Associates á sviði byggingatæknilegs bruna, tæknilegrar björgunar og neyðarþjónustu.
17 ára reynsla í þróun tækninotkunar hjá WL GORE 15 ára reynsla í notkun tæknitextíls með aramíðtrefjum við framleiðslu á persónuhlífum.
Hvernig við þróuðum byltingarkennda tæknilausn fyrir björgunaraðgerðir slökkviliðsmanna sem nú eru víða notaðar innan annarra stofnana með samskonar þarfir.
Við þróum venjulega nýja tækni og vörur með sérstakan markhóp í huga en komumst stundum að því að annar hópur hefur sömu þarfir en hefur hreinlega ekki fundið réttu vöruna eða hefur ekki vitneskju um að tiltekin vara sé til.
Í viðleitni okkar til að þróa tæknilegan björgunarfatnað komumst við að raun um að þarfir starfsmanna neyðarþjónustu og björgunarsveita eru að mörgu leyti þær sömu og slökkviliðsmanna þegar þessir hópar athafna sig á sama slysstað, en núverandi persónuhlífar veita þeim ekki sömu vernd.
Þegar áhættugreining var gerð kom í ljós að sömu þarfir eru til staðar, en í okkar tilfelli svarar tæknilausn okkar væntingum þeirra.
Í fyrirlestrinum okkar munum við ræða hvernig við völdum bestu mögulegu málamiðlunina fyrir nýjustu tækni okkar og deilum einnig reynslu okkar af endurgjöf hópa sem hafa uppgötvað eða tjáð þarfir sínar eftir að hafa prófað vöruna.