Spadoni Thomas


Spadoni Thomas

Bráðalæknir og hef sinnt fjallabjörgun í frönsku Ölpunum frá 15 ára aldri. Fyrir tveimur vikum hitti ég Ágúst Þór Gunnlaugsson í tengslum við samstarf Landsbjargar og frönsku fjallabjörgunarsveitarinnar. Þá kynnti ég lækningatækið sem ég hef unnið að því að þróa síðustu þrjú ár fyrir íslenska teyminu, en það er hannað til að koma í veg fyrir ofkælingu fyrir slysni (e. accidental hypothermia). Þau voru hrifin af þessari endurnýtanlegu varmalausn sem knúin er með raforku og litíumrafhlöðu og hvöttu mig til að mæta á næstu ráðstefnu Landsbjargar til að kynna tækið sem líklegt er að geti nýst íslenskum björgunarsveitum.
Ég sérhæfi mig í ofkælingu fyrir slysni og vil gjarnan deila reynslu minni með ykkur.
Þetta er vefsvæðið: www.thermotrauma.com

12 október 2024 10:00 - 10:45
Silfurberg A

Ofkæling fyrir slysni er algengt vandamál sem hefur áhrif á um 40% alvarlega slasaðra og á hlut í 40% dánartilvika einstaklinga undir 34 ára aldri.
Þegar fólk slasast alvarlega reynir líkaminn að sporna gegn hitatapi sem kostar líkamann mikla orku.
Til að bæta úr þessu virðist nauðsynlegt að við endurhugsum bæði aðferðir okkar og tækni til að stuðla að varma til að veita forvörnum gegn ofkælingu jafnmikilvægan sess og blóðjafnvægi og ACSOS.
Óvirkar varmalausnir sem algengast er að séu notaðar í björgunarstarfi, s.s. álteppi, geta ekki komið í veg fyrir ofkælingu.
Eingöngu virkar varmalausnir, á borð við þær sem notaðar eru á sjúkrahúsum, geta séð líkamanum fyrir nægum hita og gert honum kleift að varðveita lífsnauðsynlegar hitaeiningar.
Markmið fyrirlestursins er að miðla reynslu eftir ársnotkun frönsku fjallabjörgunarsveitarinnar á virka varmakerfinu „Therm-up“ til að koma í veg fyrir ofkælingu fyrir slysni.