Einar Sveinn Jónsson


Einar Sveinn Jónsson

Einar Sveinn er slökkviliðsstjóri í Grindavík og Dalvíkingur í húð og hár. Einar er löggiltur slökkviliðsmaður og hefur einnig lokið öllum námskeiðum í eldvarnareftirliti. Hann hefur verið starfandi í slökkviliði Grindavíkur í 20 ár og sem sjúkraflutningamaður í tíu ár.

11 október 2024 14:00 - 14:45
Silfurberg B

Einar fékk óvænt það verkefni að kljást við gríðarlega skógarelda sem kviknuðu í eldgosinu við Litla Hrút 2023. Mikinn mannafla þurfti til að ráða niðurlögum eldsins og þurfti allar hendur á dekk frá slökkviliðum nær og fjær. Litlu mátti muna að eldurinn myndi breiðast út í dýpri mosa sem hefði getað ógnað samgöngum á Suðurnesjum. Einar fer yfir aðgerðir viðbragðsaðila og spáir í hvers megi vænta ef eldvirkni heldur áfram á Suðurnesjunum.