Scott C. Hammond


Scott C. Hammond

Prófessor Scott Hammond frá Utah State University (Bandaríkjunum) er alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í teymisframmistöðu og hefur komið að yfir 500 leitar- og björgunarleiðöngrum. Í bók sinni „Highly Reliable Teams“, sem kom út nýverið, greinir hann níu eiginleika sem leitar- og björgunarteymi þarf að búa yfir til að ná sem bestum árangri. Dr. Hammond er höfundur sex bóka og fjölmargra greina. Hann kemur reglulega fram í fjölmiðlum og er eftirsóttur sem fyrirlesari og þjálfari. En þegar kallið kemur leggur hann allt annað til hliðar.

„Það sem gefur mér mest í starfinu er að vinna með félögum mínum í leitar- og björgunarteyminu og fá að liðsinna manneskju sem er að upplifa versta dag ævi sinnar,“ segir hann. „Teymið mitt hefur kennt mér að ekkert er öflugra en að eiga sér sameiginlegt markmið og að fátt veitir meiri gleði en huga að velferð liðsfélagana og annarra.“

11 október 2024 13:00 - 13:45
Silfurberg A

Það eru níu hlutir sem bestu leitar- og björgunarteymin gera til að skila samfelldum árangri á öruggan hátt í sínum verkefnum. Teymið þitt er eflaust þegar með einhver þessara atriða á hreinu, en jafn líklega ábótavant varðandi önnur þeirra. Þessi atriði tengjast ekki sérþekkingu, tækniþjálfun, búnaði eða skipulagi. Þau tengjast mannlegu atferli og liðsanda.

Þessi (vinnustofa og/eða fyrirlestur) snýst um að byggja upp liðsanda sem einkennist af miklum áreiðanleika. Dr. Hammond sýnir fram á hvernig heilbrigður liðsandi getur bætt frammistöðu og dregið úr áhrifum streitu. Fyrst þarf að rýna í teymið og greina bæði styrkleika og veikleika þess. Því næst þarf að eiga erfitt samtal um það hvernig hægt er að bæta samvinnuna og liðsheildina. Lokaskrefið er svo áhersla á úrbætur og eftirfylgni, sem þarf að vinna jafnt og þétt.

Í þessari vinnustofu / á þessum fyrirlestri munuð þið 1) Fræðast um níu eiginleika traustra leitar- og björgunarteyma. 2) Leggja mat á eigin leitar- og björgunarteymi með því að nota gervigreindarverkfæri fyrir áreiðanleg björgunarteymi. 3) Gera áætlanir til að viðhalda styrkleikum og fjarlægja veikleika. 4) Vinna samkvæmt sérstakri áætlun til að mæla árangur af vinnunni við að verða mjög áreiðanlegt teymi.

Þessi vinnustofa/bók byggir á bók dr. Hammond, „Highly Reliable Teams“, sem kom út árið 2024.