Sigurður Bjarki


Sigurður Bjarki

Sigurður Bjarki er undanfari í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi og einnig hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu.

Hann starfaði í áratug sem fjallaleiðsögumaður og aflaði sér þar mikillar reynslu í fjallamennsku. Sigurður Bjarki var meðal fyrstu bylgju björgunarmanna sem kom til stuðnings heimamönnum í Öræfum og Höfn.

12 október 2024 10:00 - 10:45
Kaldalón

Jaðarferðamennska í óblíðri náttúru Íslands hefur reynst mörgum talsverð áskorun. Jöklar eru varasamir yfirferðar og hörmulegt slys varð fyrir stuttu á Breiðamerkurjökli. Yfirhangandi íshella brotnaði og var talið að fjöldi manns hefði orðið undir ísnum. Í fyrirlestri sínum lýsa Freyr Ingi og Sigurður Bjarki krefjandi vinnu á vettvangi.